Afreksstarf

Fréttir

15. maí 2006 [CATEGORY]
Davíð Már Vilhjálmsson...

er einn af prinsunum í GKj. Uppalinn í Mosfellsveitinni, fæddur á dögum pontíusar pílatusar, upprisinn frá dauðum margoft í golfinu, eiginlega á hverju vori er hann skríður úr bílskúrnum, leggur kjuðana á hilluna og tekur fram kylfurnar.

Þó Dazzinn sé sleipur rokkari er hann enn feitari golfari og 1_dassi.jpghefur oft á tíðum sýnt það að hann sómar sér vel meðal sterkustu kylfinga landsins. Þráinn félagi Davíðs hefur á löngum köflum einnig sýnt okkur skemmtilega takta á vellinum og bróðir hans Bertel má segja að sé alveg stórkostlegur. Skemmst er að minnast meistaramótsins á síðasta ári þar sem kerran fékk að finna fyrir Bertel en brak dreifðist úr henni yfir hálfan völlinn frá 7 teig upp að 8 flöt. Engu líkara en að Boeing 747 hefði brotlent á Hlíðarvelli. Þráinn og Bertel eru orðnar lifandi goðsagnir í Mosfellsdalnum, líkt og Egill Skallagrímsson í Borgarfirðinum, en undanfarin ár hefur æ minna borið á þessum skemmtilegu persónum, líkt og geysir þurfa þeir sápu eða sleypiefni einhverskonar til að gjósa :).

Stærstu afrek Davíðs á vellinum eru Klúbbmeistaratitillinn hjá GKJ árið 1999, 5 eða 6 sæti á Landsmótinu í Vestmannaeyjum, 3-5 sæti í stigamóti í Vestmannaeyjum og svo að sjálfsögðu Íslandsmeistaratitillinn síðasta sumar með GKj í sveitakeppni klúbbanna þar sem hann afrekaði það að fara holu í höggi á 13 holu á Korpunni með 2 járni í upphitunarhring fyrir mótið. ;) "Þetta er ótrúlega létt golfhola, bara um 215 metrar á lengd, par 3. Ég skellti upp 2 járninu, sló þetta létt bara móti vindinum. Smell hittur bolti, fallegt flug, lenti í flatarkantinum og rúllaði beint í holu, fín tilfinning, eins og kjuði við húðir" sagði Dazzinn í ítarlegu viðtali við blaðamenn www.gkj.is

Dazzi hefur löngum verið þekktur fyrir bólfimi sína og einstakann karisma og persónutöfra, en heyrst hefur að flóð og fjara fari ekki eftir tunglstöðum í mosfellsbænum heldur flæði um öll niðurföll þegar kínaskór allra ungmeyja í mosfellsbænum sjá Dazzann keyra svörtu þrumuna gegnum hringtorgin. Þetta vita allar stúlkur á aldri við Davíð en þær hrúgast nú í framboð til bæjarstjórnar til að koma holræsakerfinu í lag í bænum :)..

Davíð er ekki á lausu stelpur, en Dazzinn er í sambandi með Írisi Ragnarsdóttur. Þráinn og Bertel eru samt ennþá á lausu og hægt er að ná í þá í síma 118.

STAÐREYNDIR:
Nafn:
Davíð Már Vilhjálmsson
Klúbbur: Golfklúbburinn Kjölur
Forgjöf:  1,3
Golfpokinn: Callaway Big Bertha Titanium 454 9° Driver, Callaway Big Bertha Titanium 13° 3 tré, Callaway Big Bertha 17° 2 járn, Callaway X-Tour járnasett 3-PW, Callaway X-Tour 52° og 58° Wedgar, Callaway I-Trax pútter
Golfskór: Ecco
Golfhanski: Callaway
Markmið í golfinu: Drullast niður í +0 í forgjöf
Fyrirmynd: Fred Couples
Uppáhalds matur: Lasagna og Pizza
Uppáhalds drykkur: Pepsí og Rauður Kristal Plús
Ég hlusta á: Rokk fyrir karlmenn
Besti völlurinn: Korpan(Besti), Vestmannaeyjar(Skemmtilegasti)
Besta skor (hvar): -2 á Selfossi og Hlíðavelli
Besta vefsíðan: www.blog.central.is/dassinn ;)
Besta blaðið: Ekki "GR-GS" Golf á Íslandi
Besta bókin: Hmm Hvað er það?
Besta bíómyndin: Dumb N' Dumber/7even

Blaðsíða: 1 af 1 | Previous Page <> Next Page
Athugasemdir
Lísa Margrét Kristjánsdóttir @
Allt eru þetta hlutir sem er nauðsynlegt að vita um litla frænda!!
kveðja
Lísa
Aðeins skráðir notendur mega skrá athugasemdir.
Innskráning
Nýskrá

Design by Combo