er uppalinn í Mosfellsbænum og hefur stundað þar golf frá barnsaldri. Guðni þykir léttur á fæti og í lund en hann leggur það í vana sinn að mæta í veislur nærbuxum einum fata ef svo ber undir. Bleikar boxer með rauðum fílum er málið stelpur, prófið bara að kíkja á hann.  Guðni hefur í gegnum árin náð athyglisverðum árangri á golfvellinum. ”Ég hef unnið Sveitakeppnina nokkrum sinnum með unglingaliðunum. Valinn í landsliðið í nokkur ár, hef komist nálægt því að vera Íslandsmeistari í bæði holukeppni og landsmóti. Ég komst sem sagt í úrslitaleik í holukeppninni en byrjaði að sjanka flest högg og tapaði”. Sagði Guðni í ítarlegu viðtali við blaðamann www.gkj.is Guðni hefur best náð 2.sæti í landsmóti unglinga. Auk þess sem hann hefur einu sinni unnið stigamót unglinga og oft á tíðum verið í toppbaráttunni. ”Ég bý hjá mömmu og pabba, og er á lausu, veð í peningum ef stelpurnar vilja vita það, ég ek um á kóngablárri Opel Östru og er bara ýkt hip og kúl náungi.” sagði Guðni. Guðni segir að bestu minningarnar í golfinu séu titlarnir í sveitakeppninni. ”Öll skiptin sem við unnum GKG í úrslitum og líka bara hvað móralinn er ALLTAF góður í liðum hjá GKJ”. STAÐREYNDIR: Nafn: Guðni Birkir Ólafsson Klúbbur: GKJ Forgjöf: 3,0 Golfpokinn: King Cobra 9°, king cobra 3 tré, Ping G2HL 2járn, Ping s59 4-pw, 54° og 60° Ping Tour? wedge-ar og McGregor(?) pútter Golfskór: Nike Hi Tech Golfhanski: FootJoy Markmið í golfinu: Evróputúrinn Fyrirmynd: El Rey Uppáhalds matur: Hamborgarahryggur og Kjúlli Uppáhalds drykkur: engin ákveðin…. Ég hlusta á: flest allt…. Besti völlurinn: Vestmanneyjar Besta skor (hvar): 70 í opna skoska boys Besta vefsíðan: www.gkj.is og fotbolti.net Besta blaðið: Besta bókin: bara einhver skólabók? Félagsfræði 1 og 2!! Besta bíómyndin: LOTR 1,2 og 3 |