Afreksstarf

Nú gefst kylfingum í afrekshópum Golfklúbbsins Kjalar kostur á að sækja um styrki úr afrekssjóði GKJ og Mosfellsbæjar.

Sjóðurinn heitir Afreks- og styrktarsjóður Golfklúbbsins Kjalar og Mosfellsbæjar og er hann í vörslu og umsjón stjórnar Kjalar.

Markmið sjóðsins er að:

  • Veita afreksfólki innan golfklúbbsins styrk vegna æfinga og/eða keppni og búa þeim sem besta aðstöðu til að stunda íþrótt sína.
  • Veita styrk til þess íþróttafólks sem valið er af GSÍ til æfinga eða keppni með landsliði.
  • Veita þjálfurum og leiðbeinendum sem starfa á vegum Kjalar styrk til að sækja viðurkennd þjálfaranámskeið og/eða aðra menntun sem eflir þá í starfi.

Stjórn sjóðsins er skipuð 3 aðilum. Formanni klúbbsins, íþróttafulltrúa Mosfellsbæjar og formanni unglinganefndar klúbbsins. Verkefni stjórnar er að ákvarða styrkveitingar úr sjóðnum og hafa eftirlit með nýtingu styrkveitinga. Sjá um kynningarstarfsemi sjóðsins.

Starfstími stjórnar sjóðsins er tvö ár. Sjóðurinn skal skila árlega skýrslu til íþrótta og tómstundanefndar og gera grein fyrir úthlutun sjóðsins. Tekjur sjóðsins er árlegt framlag Mosfellsbæjar sem ákveðið er af bæjarráði við gerð fjárhagsáætlunar ár hvert og jafn hátt framlag sem Golfklúbburinn Kjölur leggur fram í styrtkarsjóðinn ár hvert, auk frjálsra framlaga og tekna af vöxtum.

Umsóknareyðublað er að finna undir umsókn um styrk hér á vefnum.

 

Innskráning
Nýskrá

Design by Combo