Nú gefst kylfingum í afrekshópum Golfklúbbsins Kjalar kostur á að sækja um styrki úr afrekssjóði GKJ og Mosfellsbæjar.
Þeir sem geta sótt um styrki eru eftirfarandi:
- Afreksfólk innan golfklúbbsins vegna æfinga og/eða keppni
- Íþróttafólks sem valið er af GSÍ til æfinga eða keppni með landsliði.
- Þjálfarar og leiðbeinendur sem starfa á vegum Kjalar til að sækja viðurkennd þjálfaranámskeið og/eða aðra menntun sem eflir þá í starfi.
Umsóknareyðublað er að finna hér: Umsóknareyðublað