Mikið er lagt upp úr unglinga og afreksstarfi hjá Golfklúbbnum Kili. Hjá klúbbnum er starfandi afreksnefnd sem sér um skipulagningu á öllu afreksstarfi ásamt stjórn klúbbsins. Afreksstarfið hefur á undanförnum árum skilað góðum árangri og árið 2005 var það besta frá upphafi hvað árangur varðar á landsvísu. Þá var árangur 2006 einnig mjög góður en þar náðum við að verja Íslandsmeistaratitil í sveitakeppni GSÍ karlaflokki. Árið 2007 var ár kvenfólksins í klúbbnum. Nína Björk varð íslandsmeistari í höggleik fyrst kvenna í GKJ og þá urðu stúlkurnar okkar íslandsmeistarar í sveitakeppni GSÍ kvennaflokki. Í sveitakeppni öldunga urðu konurnar okkar í þriðja sæti og Rut náði þriðja sæti í íslandsmóti öldunga höggleik. Eins og sjá má af þessari upptalningu eru fáir klúbbar hér á landi, ef einhverjir, sem geta státað af árangri eins og undanfarin ár hafa verið, en það má alltaf gera betur og er stefnan sett hátt á árinu 2008. Í upptalningunni undir "árangur" 2005, 2006 og 2007 á þessari síðu er stiklað á stóru og þeir sem náðu að komast á topp 10 eru listaðir. Einnig eru talin upp nokkur mót sem eru mikilvæg og standa uppúr.