Um GKj

Forgjafarmál:

 

 

Forgjöf.


 


 


Kylfingur ber ábyrgð á sinni forgjöf og skal færa inn löglegt skor á www.golf.is. ef hann mögulega getur.


Annars skal koma skorkortum til forgjafanefndar.


 


Kylfingur með grunnforgjöf hærri en 11,5 getur fært inn skor af  9  holu hring.  (Gr.17.2).


 


 


Almennt þá skulu kylfingar skila inn 4 skorum á ári til að fá löglega forgjöf. (Gr.22.4).


 


Hafi kylfingur ekki skilað inn 4 skorum í fyrra,  þá þarf hann að skila inn 3 skorum nú í ár til að fá löglega forgjöf sem verður þá reiknuð á grundvelli síðustu forgjafar. (Gr.22.7)


 


Meistaramót.


Ef kylfingur ætlar að spila í meistaramóti og hefur ekki löglega forgjöf, þá hefur hann ekki möguleika á verðlaunum, en er auðvitað heimilt að spila í mótinu og fær löglega forgjöf eftir mótið.

 


EGA grunnforgjöf.



 


Forgjafar flokkur


 


EGA grunnforgjöf


 


Grátt 18  holu svæði


 


Grátt 9 holu svæði


 


Mesta hækkun


Lækkunarstuðull fyrir hvern punkt umfram 36


1


0 - 4,4


35 - 36


-


0,1


0,1


2


4,5 - 11,4


34 - 36


-


0,1


0,2


3


11,5 - 18,4


33 - 36


35 – 36


0,1


0,3


4


18,5 - 26,4


32 - 36


34 -36


0,1


0,4


5


26,5 - 36,0


31 - 36


35 – 36


0,2


0,5


 


Sé lækkun á milli forgjafarflokka, þá skal fyrst nota lækkunarstuðul í efri flokknum uns komið er í lægri flokkinn en þá skal nota  lækkunarstuðul lægri flokksins.


 


Forgjafanefnd.


Framfarabikar GKJ er bikar sem er á ári hverju afhentur þeim félaga 19 ára og eldri, sem hefur lækkað mest í forgjöf samkvæmt reikningsformúlu sem er þannig: upphafsforgjöf x 3 -(mínus) lokaforgjöf x 5 . Sá hlýtur bikarinn sem fær hæstu + töluna.

Framfarabikarinn 2009
Framfarabikarinn var að venju afhentur á aðalfundi Kjalar sem fram fór fimmtudaginn 26. nóvember í vélaskemmunni á Blikastaðanesi.  Þetta er í 18. sinn sem bikarinn er afhentur.  Þetta árið voru fjórir kylfingar 19 ára og eldri með plús tölu en það voru þeir Ásgeir Ævar Guðbjörnsson, Guðjón Reyr Þorsteinsson og Hrafn Ingvarsson auk þess sem hafði hæstu töluna en það var Atli Örn Sævarsson, með framfaratöluna 16,7.  Þess má geta að hann lækkaði forgjöf sína úr 24,4 niður í 11,3.  Óskum við Atla Erni til hamingju með árangur síðasta sumars og vitum að þessi útnefning hvetur hann til að lækka sig enn frekar.


Framfarabikarinn 2008
Framfarabikarinn var að venju afhentur á aðalfundi Kjalar sem fram fór laugardaginn 6. desember í vélaskemmunni á Blikastaðanesi.  Þetta er í 17. sinn sem bikarinn er afhentur.  Þetta árið voru þrír kylfingar 19 ára og eldri með plús tölu en það voru þeir Þórhallur Gunnarsson með töluna , Páll Þórir Viktorsson með 13,8 og svo sá sem bikarinn hlýtur en hann heitir Þór Sigurðsson.  Hann var með 14 í  plús og náði að lækka sig úr 36 niður í 18,8.  Óskum við Þór til hamingju með árangur síðasta sumars og vitum að þessi útnefning hvetur hann til að lækka sig enn frekar í forgjöf.

Framfarabikarinn 2007

Á aðalfundi klúbbsins þann 8. desember 2007 fór framkv.stj. yfir hver hlyti framfarabikarinn fyrir árið 2007.  Að þessu sinni var það landsliðsmaðurinn og meistaraflokkskylfingurinn Kristján Þór Einarsson sem hlaut þennan heiður.  Lækkaði hann forgjöf sína frá +1,3 niður í +1,9.   Þetta er í þriðja sinn sem Kristján Þór hlýtur þennan bikar og óskum við honum innilega til hamingju með þennan árangur. 

 

Framfarabikarinn 2006
Á aðalfundi þann 27. nóv. 2006 fór fram árleg afhending bikarsins og nú í 14. sinn.  Eins og á síðasta ári þá var það ungur félagi sem hlaut þennan heiður.  Hann lækkaði forgjöf sína úr 35,5 niður í 17,5.  Þessi drengur heitir Guðni Valur Guðnason og er hann aðeins 10 ára síðan í október og þar af leiðandi sá yngsti sem hefur hlotið bikarinn hingað til.  Fékk hann deilitöluna 19 sem er í hærra lagi.  Óskum við Guðna til hamingju og hvetjum við hann til  að halda æfingum áfram því eins og ávallt þá skapar æfingin meistarann.

Framfarabikarinn 2005

FramfararbikarÁ aðalfundi þann 6. nóv. sl. fór fram árleg afhending bikarsins og nú í 13 sinn.  Þetta árið náði Sveinn Ísleifsson (til hægri á myndinni hér að ofan) að lækka sig úr 27,5 niður í 11,8 í forgjöf (27,5x3=82,5 - 11,8x5=59 þannig að hann fékk +23,5).  Er þetta ein hæsta tala í sögu bikarsins.  Óskum við Sveini til hamingu með árangurinn og hvetjum hann að halda áfram á sömu braut því æfingin skapar meistarann.

Innskráning
Nýskrá

Design by Combo