Current Articles
Laugardagspúttmót GKJ lauk nú fyrir stundu. Það voru 19 þátttakendur sem mættu í æfingaaðstöðuna í vélaskemmunni og léku þrjá 9 holu hringi þar sem tveir bestu gildu til úrslita. Helstu úrslit urðu þessi:
1. Emil Karlsson, 30 pútt (16-14) 2. Gunnar Árnason, 30 pútt (15-15) 3. Walter Hjartarson, 31 pútt (16-15)
Þá má geta þess að þeir Hilmar Harðarson, Skúli Guðmundsson, Kjartan Ólafsson og Sigurður Waage voru einnig með 31 pútt en með 16 á seinni 9 holunum. Næsta laugardag verður gerð heiðarleg tilraun til að fara út og halda Vetrarmótaröðinni áfram en það verður nánar auglýst þegar nær dregur.
Golfklúbburinn Kjölur – Pósthólf 173 – 270 Mosfellsbær Kt. 650581-0329 gkj@gkj.is – sími 566-7415 – fax 566-8387