Fréttir
Svavar Kristinsson, GKJ náði draumahöggi allra kylfinga í gær þegar hann fór holu í höggi á 1. holu Hlíðavalla. Notaði hann wedge við höggið og lenti boltinn fremst á flötinni rétt yfir sandglompuna og rúllaði svo beint í holuna við mikinn fögnuð viðstaddra.
Þá náði Örn Helgi Haraldsson, GD og GKJ draumahögginu á 8. holu þann 18. ágúst.
Óskum við þeim félögum til hamingju með höggið og að vera orðnir meðlimir í Einherjaklúbbnum.
Golfklúbburinn Kjölur – Pósthólf 173 – 270 Mosfellsbær Kt. 650581-0329 gkj@gkj.is – sími 566-7415 – fax 566-8387