Fréttir | Fréttamiðlun
Fyrsta vetrarmót ársins og það fyrsta í rúmlega tvo mánuði fór fram á Hlíðavelli í gær við mikla ánægju þátttakenda. Það voru 28 kátir félagar sem tóku þátt og léku 11 holur að þessu sinni þar sem bleyta kom í veg fyrir að 1., 17. og 18. væru notaðar og síðan voru 4 nýjustu holurnar á nesinu hvíldar. Það er skemmst frá því að segja að Þórhallur Kristvinsson sigraði í höggleiknum á 45 höggum eða tveimur yfir pari og Haukur Hafsteinsson í punktakeppninni á 24 punktum. Annars urðu helstu úrslit þessi:
Höggleikur: 1. Þórhallur Kristvinsson, 45 högg 2. Kjartan Ólafsson, 48 högg 3. Bragi Jónsson, 50 högg
Punktakeppni m/forgjöf: 1. Haukur Hafsteinsson, 24 punkta 2. Snorri Pétursson, 23 punkta 3. Páll Ásmundsson, 21 punkt
Næsta mót verður vonandi n.k. laugardag og verður látið vita í vikunni ef það verður hið árlega Þorramót. Allavega verður það mót næst eða þar næst.
Golfklúbburinn Kjölur – Pósthólf 173 – 270 Mosfellsbær Kt. 650581-0329 gkj@gkj.is – sími 566-7415 – fax 566-8387