Fréttir | Fréttamiðlun
Fjórða mótið á Áskorendamótaröð GKJ fór fram í gær sunnudag. Það voru 26 kylfingar sem tóku þátt og sumir léku tvo hringi til að ná takmarkinu að komast áfram í Lokamótið. Nú er það Theodór Emil Karlsson sem náði að halda nýjum aðila frá Lokamótinu. Þeim sem tókst að tryggja sig áfram með honum eru að þessu sinni Björgvin Franz og Bragi Jónsson. Þannig að þessir eru komnir áfram á lokamótið sem verður 18. mars:
Skúli Skúlason Theodór Emil Karlsson Gunnar Árnason Kjartan Ólafsson Ragnar Már Ríkharðsson Hákon Gunnarsson Björgvin Franz Bragi Jónsson
Næsta mót er n.k. sunnudag og stendur yfir frá kl. 12:30-15:00.
Þá náði afrekshópur aftur í lið í áskorendakeppninni-afrekshópur á móti almennum kylfingum- en lið almenna kylfingsins náði einnar púttar forystu eftir að jafnt var eftir fyrsta mótið.
Skor afrekshóps: Theodór Emil Karlsson, 27 pútt Björgvin Franz, 28 pútt Ragnar Már Ríkharðsson, 30 pútt Þorsteinn Orri Eyjólfsson, 30 pútt Stefán Hallgrímsson, 31 pútt
Eða samtals 146 pútt
Skor almenna kylfings: Bragi Jónsson, 28 pútt Hilmar Harðarson, 29 pútt Róbert Guðmundsson, 29 pútt Gunnar Andrésson, 29 pútt Kjartan Ólafsson, 30 pútt
Eða samtals 145 pútt
Heildarstaðan eftir 2 mót er þá þannig:
Almennir Kylfingar 291 pútt Afrekskylfingar 292 pútt
Golfklúbburinn Kjölur – Pósthólf 173 – 270 Mosfellsbær Kt. 650581-0329 gkj@gkj.is – sími 566-7415 – fax 566-8387