22. maí 2013

Um GKj

Golfklúbburinn Kjölur var stofnaður 7. desember 1980.

 

Skráðir stofnfélagar voru 95 og af þeim byrjuðu 40 að leika golf. Af þessum 40 eru 4 látnir en 16 eru ennþá virkir félagar í klúbbnum. Við stofnun klúbbsins lá ekkert fyrir um hvort, hvenær eða hvar yrði leikið golf á hans vegum. Var því fljótlega hafist handa um að reyna að útvega land fyrir golfvöll.

 

Á fyrsta stjórnarfundi sem haldinn var, var ákveðið að sækjast eftir því landi sem golfvöllurinn er nú á. Áður en land þetta fengist átti þó mikið vatn eftir að renna til sjávar og margt að gerast í málefnum klúbbsins.

Fyrsta sumarið í sögu klúbbsins fengum við að láni land í Leirvogstungu. Þar var stór hluti landsins tún og við gátum hafið golfleik þar í júlímánuði og leikið til hausts.
Þessi aðstaða var golfklúbbnum mikil lyftistöng félagslega og þjappaði mannskapnum all vel saman.
Átti eftir að koma í ljós að ekki veitti af samstöðu félaganna þegar hafist var handa um byggingu eigin golfvallar.

 

Í maí 1983 var undirritaður samningur milli Mosfellshrepps og golfklúbbsins um leigu á landi því sem golfvöllurinn er nú á og var leigutíminn 20 ár.
Hannes Þorsteinsson var fenginn til þess að hanna völlinn og
strax sumarið 1983 var hafist handa við byggingu hans. Sú framkvæmd var að mestu leyti unnin í sjálfboðaliðsvinnu og lauk ekki fyrr en 1986.
Unnu félagar klúbbsins í öllum sínum frístundum við herfingu, sáningu, grjóttínslu og alls konar jarðarbætur en land það sem við höfðum fengið var aðeins að litlum hluta ræktað.

 

Túnþökur voru lagðar á alla teiga og flatir af félögum sjálfum.
Hlíðavöllur var formlega tekinn í notkun í júlí 1986 og var þá 5678 metrar að lengd miðað við 18 holur.

 

Uppbyggingastarfinu var þó haldið áfram því margt var ógert við snyrtingu og frágang.
Þetta verk hefur unnist smátt og smátt með árunum og hefur völlurinn tekið miklum stakkaskiptum frá því fyrst var byrjað að leika á honum.
Má segja að hann hafi hin síðari ár verið meðal best hirtu golfvalla á höfuðborgarsvæðinu og þótt víðar væri leitað.

 

Ekki hafa verið gerðar verulegar breytingar á skipulagi golfvallarins á þessum tíma sem liðinn er.

Þó hefur verið bætt við tjörn og sandglompum og tilraun hefur verið gerð til þess að rækta tré á vellinum.

Allar flatir hafa nú verið endurnýjaðar og miklar lagfæringar gerðar á 5.og 6. braut vegna byggðar við hliðina á golfvellinum og á 3. braut v/slysahættu af 4. teig.

 

Þá er byrjað á stækkun vallarins uppí 18. holur og er strax farin að koma mynd á það starf.  Árið 2008 voru fimm nýjar framtíðar holur nr. 10, 11, 16, 17 og 18 teknar í notkun á miðju sumri og þótti takast vel til.  Þrátt fyrir kreppuástand er nú komin á koppin ný áætlun um opnun vallarins í samvinnu við Landsbankann og ætlar klúbburinn í tilefni 30 ára afmælis Kjalar að gefa félögum í afmælisgjöf að klára þessar fjórar holur sem eftir eru og halda afmælismót á 18 holu velli í september. 


Það jákvæða er að síðastliðinn vetur var tekin í notkun ný 540 m2 vélaskemma á Blikastaðanesi.  Þar var tekin í notkun inniæfingaaðstöða fyrir klúbbfélaga í GKJ og GOB í samvinnu við Mosfellsbæ.  Opnaði pútt og chipp svæði þann 5. janúar.  Þá var tekin í notkun æfingaaðstaða til að slá í net þann 10. febrúar.  Hægt er að fullyrða að þetta sé mikil lyftistöng fyrir klúbbfélaga til að stunda æfingar yfir vetrarmánuðina.

Spilaréttur
Leiran - fríspil 5 hringir pr. fél. GKJ
Leynir - kr. 2000
Seyðisfjörður - fríspil 5 hringir
Jökull, Ólafsvík  - fríspil  
Húsavík - kr. 500,- 
        Brautarholt  1 hringur frír pr. fél. GKJ


Þverá, Fljótshlíð - kr. 2000,-  
Borgarnes- kr. 2000,-  
Golfklúbbur Hveragerðis 50% afsláttur 
Selfoss - 50% af fullu vallargjaldi
Vestmannaeyjar -kr. 3000 eða helmingur af fullu vallargjaldi (eftir að ákveða vallargjöld 2013)
Akureyri - 30% af fullu vallargjaldi þegar ekki eru mót 

Athugið að sýna þarf félagsskírteini og/eða persónuskilríki ef um það er beðið

Æfingar

Æfingataflan sem unnið verður eftir frá 7.janúar fram að sumaræfingum er klár.

Mánudagar

16-17: Stúlkur 1999 og yngri

17-18: Drengir 1998-2001

18-19: Framtíðarhópur eldri

19-20: Framtíðarhópur yngri

20-21: Afrekshópur

21-22 : Meistaraflokkur

Miðvikudagar

16-17: Drengir 2002 og yngri

17-18: Stúlkur 1999 og yngri

18-19: Drengir 1998-2001

19-20: Afrekshópur

20-21: Meistaraflokkur

Fimmtudagar:

16-17: Drengir 2002 og yngri

17-18: Framtíðarhópur eldri

18-19: Framtíðarhópur yngri

19-20: Afrekshópur

Föstudagar:

16-18: Opin æfing fyrir framtíðar, afreks og meistaraflokka.

Mót ársins