20. maí 2013
24

Um síðastliðna helgi voru 17 Kjalarunglingar við keppni á bæði Arionbanka mótaröð unglinga á Akranesi og Áskorendamótaröð unglinga sem fór fram hjá Nesklúbbnum.

Kristófer Karl Karlsson sigraði sinn flokk á Áskorendamótaröðinni. Hann lék hringinn á glæsilegum 77 höggum og endaði tveimur höggum á undan næsta manni. Frábær árangur hjá Kristófer sem verður 11 ára seinna á árinu en lék í flokki 14 ára og yngri.

Á laugardeginum fór fram fyrri hringur í Arionbanka mótaröð unglinga á Akranesi. Þar náði Elís Rúnar Elísson draumahöggi allra kylfinga þegar hann fór holu í höggi á 8. braut vallarins. Elís notaði 6-járnið í höggið.

Gaman er að minnast á það að þeir 17 unglingar sem kepptu um helgina lækkuðu forgjöfina sína samtals um tæpa 10 heila. Þeir sem lækkuðu í forgjöf voru.

  • Ragnar Már Ríkarðsson - 44 punktar
  • Kristófer Karl Karlsson - 43 punktar
  • Björgvin Franz Björgvinsson - 41 punktur
  • Elís Rúnar Elísson - 41 punktur
  • Björn Óskar Guðjónsson - 39 punktar
  • Sverrir Haraldsson - 37 punktar 

Frábær helgi hjá unglingunum okkar og óskum við þeim innilega til hamingju með árangurinn. 

Aðgerðir: E-mail |
Spilaréttur
Leiran - fríspil 5 hringir pr. fél. GKJ
Leynir - kr. 2000
Seyðisfjörður - fríspil 5 hringir
Jökull, Ólafsvík  - fríspil  
Húsavík - kr. 500,- 
        Brautarholt  1 hringur frír pr. fél. GKJ


Þverá, Fljótshlíð - kr. 2000,-  
Borgarnes- kr. 2000,-  eftir að semja 2013
Golfklúbbur Hveragerðis 50% afsláttur 
Selfoss - 50% af fullu vallargjaldi
Vestmannaeyjar -kr. 3000 eða helmingur af fullu vallargjaldi (eftir að ákveða vallargjöld 2013)
Akureyri - 30% af fullu vallargjaldi þegar ekki eru mót 

Athugið að sýna þarf félagsskírteini og/eða persónuskilríki ef um það er beðið

Æfingar

Æfingataflan sem unnið verður eftir frá 7.janúar fram að sumaræfingum er klár.

Mánudagar

16-17: Stúlkur 1999 og yngri

17-18: Drengir 1998-2001

18-19: Framtíðarhópur eldri

19-20: Framtíðarhópur yngri

20-21: Afrekshópur

21-22 : Meistaraflokkur

Miðvikudagar

16-17: Drengir 2002 og yngri

17-18: Stúlkur 1999 og yngri

18-19: Drengir 1998-2001

19-20: Afrekshópur

20-21: Meistaraflokkur

Fimmtudagar:

16-17: Drengir 2002 og yngri

17-18: Framtíðarhópur eldri

18-19: Framtíðarhópur yngri

19-20: Afrekshópur

Föstudagar:

16-18: Opin æfing fyrir framtíðar, afreks og meistaraflokka.

Mót ársins