19. maí 2013
16
Nýr 6 holu par 3 völlur á nýja æfingasvæði GKJ
Það er búið að opna nýja æfingavöllinn á æfingasvæðinum fyrir aftan vélaskemmuna. Það voru vallarstarfsmenn sem tóku forskot og vígðu völlinn síðastliðinn miðvikudag. Þetta er upplagt fyrir börn og nýja golfara að koma og leika þennan völl endurgjaldlaust, aðeins þarf að fara í golfskála og gefa sig fram og fá leiðbeiningu hvernig á að komast útá svæðið. Þeir sem fara fótgangandi frá skála geta tekið göngustíg meðfram 2. braut og gengið upp á svæðið milli 4. flatar og 5. teigs. Þeir sem eru akandi þurfa að fara í áttina að vélaskemmu og keyra meðfram 12. braut og leggja á malastæði þar sem 1. hola vallarins er staðsett. Þetta á eftir að vera mikil lyftistöng fyrir þá sem eru leiðir á að standa á sama stað og æfa stutta spilið. Þá er einnig búið að taka í notkun æfingabraut sem nýtist afrekskylfingum bæði ungum sem öldnum.  Hægt að sjá myndir í albúmi hér á gkj.is
Aðgerðir: E-mail |
Spilaréttur
Leiran - fríspil 5 hringir pr. fél. GKJ
Leynir - kr. 2000
Seyðisfjörður - fríspil 5 hringir
Jökull, Ólafsvík  - fríspil  
Húsavík - kr. 500,- 
        Brautarholt  1 hringur frír pr. fél. GKJ


Þverá, Fljótshlíð - kr. 2000,-  
Borgarnes- kr. 2000,-  eftir að semja 2013
Golfklúbbur Hveragerðis 50% afsláttur 
Selfoss - 50% af fullu vallargjaldi
Vestmannaeyjar -kr. 3000 eða helmingur af fullu vallargjaldi (eftir að ákveða vallargjöld 2013)
Akureyri - 30% af fullu vallargjaldi þegar ekki eru mót 

Athugið að sýna þarf félagsskírteini og/eða persónuskilríki ef um það er beðið

Æfingar

Æfingataflan sem unnið verður eftir frá 7.janúar fram að sumaræfingum er klár.

Mánudagar

16-17: Stúlkur 1999 og yngri

17-18: Drengir 1998-2001

18-19: Framtíðarhópur eldri

19-20: Framtíðarhópur yngri

20-21: Afrekshópur

21-22 : Meistaraflokkur

Miðvikudagar

16-17: Drengir 2002 og yngri

17-18: Stúlkur 1999 og yngri

18-19: Drengir 1998-2001

19-20: Afrekshópur

20-21: Meistaraflokkur

Fimmtudagar:

16-17: Drengir 2002 og yngri

17-18: Framtíðarhópur eldri

18-19: Framtíðarhópur yngri

19-20: Afrekshópur

Föstudagar:

16-18: Opin æfing fyrir framtíðar, afreks og meistaraflokka.

Mót ársins