Golfkennsla
Einar Lyng mun sjá um kennslu hjá hinum almenna félaga GKJ. Við þekkjum hann frá fyrri árum þar sem hann hefur verið að kenna konum í klúbbnum og fengið aðstöðu hjá okkur yfir sumartímann.
Verðlisti:
1/2 klst. fyrir einn í kennslu hjá Einari í Básum kr. 3.000 án bolta.
Tilboð 2 saman í 1 klst. í Básum kr. 5.000 án bolta.
Þá gerir hann tilboð í hópa og síminn hjá honum er 7712410.
Golfnámskeið barna
Í sumar mun Golfklúbburinn Kjölur halda golfnámskeið fyrir börn og unglinga. Undanfarin sumur hafa námskeiðin verið mjög vinsæl og margir af okkar bestu kylfingum stigið sín fyrstu skref í íþróttinni á þessum námskeiðum. Á námskeiðunum er farið yfir grunnatriði golfsveiflunnar og þá þætti sem ber að huga að þegar leikið er golf. Kennslan á námskeiðunum er sett upp á léttan og skemmtilegan hátt með leikjum og keppni þar sem aðalmarkmiðið er að krakkarnir upplifi íþróttina á jákvæðan og skemmtilegan hátt. Námskeiðin eru fjóra daga vikunnar frá mánudegi til fimmtudags og hefjast klukkan 10 á morgnana og standa til klukkan 14. Boðið verður uppá nokkra möguleika á námskeiðunum, viku námskeið til fjögurra vikna námskeið.
Námskeiðin hefjast eftirtalda daga:
8. júní
14. júní
21. júní
28. júní
26. júlí (eingöngu 4 dagar)
Þá er stefnt að einu námskeiði í ágúst áður en skólar byja 9. ágúst og fer það eftir skráningu hvort það verður.
Umsjónarmaður námskeiðanna er Davíð Gunnlaugsson og honum til halds og traust eru þau Jón Bjarki Oddsson og Heiða Guðnadóttir.
Námskeiðsgjald 2010:
1. vika 10.000.- krónur, innifalið í gjaldi eru 4 hádegisverðir
2. vikur 18.000.- krónur, innifalið í gjaldi eru 8 hádegisverðir
3 vikur 26.000.- krónur, innifalið í gjaldi eru 12 hádegisverðir
4 vikur 34.000,- krónur, innifalið í gjaldi eru 16 hádegisverðir
Æfingasvæði
Þar sem öll starfsemi vallarstarfsmanna er komin í nýju vélaskemmuna á Blikastaðanesi var farið í það að betrumbæta æfingasvæðið og nýta þau hús og gáma til að gera það betra til að börnum og fullorðnum kylfingum líði betur og að fleiri komast að til að slá bolta. Farið var í þetta í maí í góðri samvinnu við Mosfellsbæ.
Þegar þessum framkvæmdu lauk var útiæfingasvæðið opnað og var opið frá 8 til 23 alla daga. Svæðið er venjulega opið fram í október (jafnvel lengur). Boltavélin tekur 10, 50 og 100 kr. mynt (ekki tokens) og kostar hver fata kr. 300. Þá er hægt að kaupa kort í vélina í golfskála. Verð á kortunum er:
10 fötu kort á kr. 2.600 (260 pr. fata)
15 fötu kort á kr. 3.700 (247 pr. fata)
20 fötu kort á kr. 4.800 (240 pr. fata)
25 fötu kort á kr. 5.600 (224 pr. fata)
30 fötu kort á kr. 6.600 (220 pr. fata)