Upplýsingar fyrir nýliða
Hægt er að sækja um í GKJ með því að smella á umsóknarhnappinn vinstra megin á forsíðu gkj.is en þar þarf að fylla út eftirfarandi upplýsingum:
Nafn, heimilisfang, kennit., póstfang, h-síma, v-síma og gsm. Taka skal fram hvort umsækjandi er nýliði og ef ekki úr hvaða klúbb og þá hvaða forgjöf hann er með.
Umsóknum verður svarað fljótlega, og í framhaldinu hvernig hægt er að ganga frá gjaldi. Ef ykkur sem sækið um fer að lengja eftir svari endilega hringið í síma 861 2539.
Það er enginn biðlisti í gangi og um að gera að sækja um sem fyrst.
Gjaldskrá fyrir árið 2011
Fullorðnir kr. 77.000
Unglingar 16-19 ára kr. 40.000
Unglingar 14-15 ára kr. 33.000
Unglingar 0-13 ára kr. 25.000
Ellilífeyrisþegar kr. 57.000
Stjórnin hefur heimild að setja á inntökugjald á árinu 2012
Athugið að þegar annað hjóna nær 67 ára aldri greiðir yngri aðilinn kr. 77.000 og sá sem hefur náð 67 árunum 57.000 eða samtals 134.000
Fjölskylduafsláttur: börn og unglingar 19 ára og yngri umfram eitt fá 50% afslátt af gjaldskrá.
NÝLIÐANÁMSKEIÐ þ.e. reglunámskeið verða auglýst síðar.
Pokamerki 2012 koma í apríl (að öllu óbreyttu) og verða afhent í golfskála.