Er einn af ungu og efnilegu kylfingum Gkj. Davíð hefur nú þegar afrekað ýmislegt á golfvellinum en hápunkturinn hlýtur þó að teljast hafa náðs enn sem komið er þegar hann varð Íslandsmeistari í sveitakeppni unglinga 2005. ”Það mót var án efa það skemmtilegasta sem ég hef tekið þátt í á ævinni. Ég hef aldrei áður verið í jafn samstilltu liði og sveitin var þetta árið. Frábær mórall hjálpaði pottþétt til.” sagði Davíð í ítarlegu viðtali við blaðamenn gkj.is Auk þess að verða Íslandsmeistari með sveitinni varð Davíð Klúbbmeistari Gkj í flokki 16-18 ára árið 2005. Davíð hefur búið í mosfellsbæ alla sína ævi og hefur að eigin sögn ekki áhuga á að búa neins staðar annarstaðar. Hann er á öðru ári í Verzlunarskóla Íslands er sem sé vesalingur, og stefnir á að komast til Bandaríkjanna í háskóla á skólastyrk þegar hann er búinn að klára Verzló. Þess má geta að Davíð er einnig lipur knattspyrnumaður, en mönnum greinir þó á um greind hans í þeim málum, en hann segist halda með Liverpool sem verður að teljast skelfilegur galli á annars ágætum golfara. Segið svo að blaðamenn geti ekki verið hlutlausir. STAÐREYNDIR: Nafn: Davíð Gunnlaugsson Klúbbur: GKJ Forgjöf: 4,8 Golfpokinn : Járn: Callaway x-tour driver: Callaway Big Bertha Wedge: Titleist og hippo Pútter: Odyssey Golfskór: Ecco Golfhanski: Srixon Markmið í golfinu: Komast í skóla í Bandaríkjunum og þaðan á Bandarísku eða Evrópsku mótaröðina. Fyrirmynd: Tiger Woods Uppáhalds matur: Pitsa Uppáhalds drykkur:Sprite Ég hlusta á: Tónlist og Hauk Hafsteins Besti völlurinn: Grande Pines Besta blaðið: Golf á Íslandi. Besta bókin: Tiger Woods bókin Besta bíómyndin: Happy Gilmore |