Unglingastarf

Fréttir | Fréttamiðlun

9. mars 2006 [CATEGORY]
Kristján Þór Einarsson
var valinn í íslenska landsliðið sem tók þátt í Evrópumóti áhugamanna í Brussel á dögunum. Hann er  Íslandsmeistari unglinga í holukeppni og þá varð hann einnig Íslandsmeistari í sveitakeppni, bæði með karlaliði GKj og unglingaliði GKj. Hann hefur einnig æft knattspyrnu með HK og á þrjá Íslandsmeistaratitla með félaginu í yngri flokkum.

„Fyrsta skiptið sem að ég fór í golf þá dró félagi minn, hann Kári Örn, mig út á golfvöll því hann var að fara á golfæfingu og sagði mér að koma með og prófa að vera með. Síðan þá hef ég bara ekki sleppt golfkylfunum. Það má eignlega segja það að Árni hafi komið mér af stað í golfinu því hann kenndi mér vel og sagði mér alltaf að ég myndi ná langt í golfinu ef að ég myndi æfa mig vel. Ég get þakkað honum og Inga Rúnari Gíslasyni fyrir það sem ég er í dag, fyrir að hafa stutt vel við bakið á mér í gegnum árin,“ sagði Kristján Þór.

Hann hefur alltaf verið í  GKj og segist aldrei ætla að skipta um klúbb. Hann stundar nám í Verslunarskóla Íslands.  „Auk golfsins þá er ég að æfa fótbolta, en er svona meira í honum á veturna til að halda mér í góðu formi fyrir komandi keppnistímabil.“

STAÐREYNDIR:

Nafn: Kristján Þór Einarsson.
Klúbbur: GKj
Forgjöf:  1,4
Golfpokinn: Titleist 975 J 8,5°, Callaway Big Bertha 4 tré 16°, Callaway x-14 pro series járn 3 – P, Callaway Forged + wedgar 52°, 56° og 60°, Ping Anser C G2i
Golfskór: Ecco
Golfhanski: Footjoy og Kasco
Markmið í golfinu: Að komst á Evróputúrinn
Fyrirmynd: Heiðar Davíð Bragason
Uppáhalds matur: Kjúklingapasta og Pizza
Uppáhalds drykkur: Egils Mix
Ég hlusta á: Allt, er alæta á tónlist
Besti völlurinn: Korpan
Besta skor (hvar):  68 (-4) á Hlíðavelli
Besta vefsíðan:. Kylfingur.is
Besta blaðið: Golf á Íslandi
Besta bókin:. Les ekki bækur
Besta bíómyndin: Sin City
Blaðsíða: 1 af 1 | Previous Page <> Next Page
Athugasemdir
Innskráning
Nýskrá

Design by Combo