Það voru 17 kylfingar sem komu og tóku þátt í öðru móti á Áskorendamótaröðinni og borguðu allt frá einum uppí fjóra hringi. Það var spennandi fram til kl. 15:30 hverjir komust áfram en tveir leikmenn sköruðu fram úr að þessu sinni á 25 púttum en það voru þeir Skúli Skúlason og Kjartan Ólafsson. Í þriðja sæti varð síðan Gunnar Árnason og bætist þá aðeins Kjartan við í Lokamótið þar sem hinir voru búnir að vinna sér sæti þar. Annars eru þessir komnir áfram á Lokamótið sem verður 18. mars: Skúli Skúlason
Theodór Emil Karlsson
Gunnar Árnason
Kjartan Ólafsson
Næsta mót verður haldið sunnudaginn 5. febrúar og fer fram í Vélaskemmu GKJ frá klukkan 12:30-15. Endilega mætið og freistið gæfunnar í skemmtilegri keppni og í leiðinni styrkið þið æfingaferð GKJ ungmenna sem farinn verður til Spánar þann 9. apríl.
|