Í dag miðvikudaginn 1. febr. verður annað mótið á Púttmótaröð sem Karl Loftsson hefur haft veg og vanda af. Síðast var ófært niður í vélaskemmu en nú er það engin afsökun að mæta ekki. Þessi mótaröð var alltaf á mánudögum en þar sem Karl er upptekinn þá daga var hún færð yfir á miðvikudaga og heitir hér með Miðvikudagspúttmótaröð Kalla Lofts. Reglur hafa verið aðeins öðruvísi en í hinum púttmótatöðunum og verður útskýrð fyrir þátttakendum þegar þeir mæta. Hefst mótið í dag stundvíslega kl. 20 og geta félagar mætt fyrr til að hita sig upp og fá kynnigu á reglum mótsins. |